Landshlutaferðirnar okkar

Í yfir 20 ár höfum við boðið viðskiptavinum okkar sem staðsettir eru utan höfuðborgarsvæðisins upp á reglulegar ferðir til að sækja til þeirra gögn. Þessi þjónusta er lykilþáttur í þeirri stefnu okkar að þjóna öllu landinu, allt eftir þörfum viðskiptavina og óskum á hverjum stað. Auk reglulegra ferða bjóðum við upp á að sækja gögn í samstarfi við flutningsaðila þar sem okkar öryggisferlum er fylgt. Hefur það samstarf reynst farsælt, bæði lipurt og öruggt. Henti þessi þjónusta þér eða þínu fyrirtæki hafðu þá samband við okkur með því að senda tölvupóst á netfangið gagnaeyding@gagnaeyding.is eða hringja í síma 568-9095 og við komum með tillögu um hvernig best verður komið til móts við þínar óskir.

Þeir landshlutar sem eru á fastri dagskrá einu sinni í mánuði eru:

  • Suðurland
  • Norðurland
  • Suðurnes

Þeir landshlutar sem eru eftir samkomulagi og eftirspurn eru:

  • Austurland
  • Vesturland