Verðlagning

Öll viðskipti Gagnaeyðingar eru reikningsfærð. Fyrir hverja afhendingu gagna er greitt grunngjald fyrir þjónustuna, gjald fyrir eyðingu gagnanna og gjald fyrir losun á íláti ef um það er að ræða.

Gjald fyrir eyðinguna ræðst af tegund gagnanna / gagnamiðilsins. Pappír og vélbúnaður sem ekki geymir gögn er vigtaður. „Annað“, sem getur verið auglýsingavörur, gervilimir, læsingar, snyrtivörur o.m.fl., er líka vigtað nema í mjög sérstökum tilfellum talið. Allir rafrænir gagnamiðlar eru taldir, þ.e.: harðir diskar, flass-drif, SSD, USB lyklar, floppy diskar, diskettur, spólur, CD, DVD og farsímar.

Mjög mismunandi er hversu smátt þarf að tæta miðilinn til að upplýsingum á honum teljist fargað. Á pappírssnepli sem er 2 x 2 sm er hverfandi brot af þeim upplýsingum sem jafn stór kubbur af SSD drifi hefur að geyma. Það er þannig gerð miðilsins sem ræður því hvað telst fullnægjandi tæting. Gagnaeyðing hefur yfir að ráða búnaði til að tæta alla gagnamiðla í smæstu agnir þannig að uppfylli hæstu öryggiskröfur.