Vottun
Þegar talað er um vottun, þá er átt við að til sé forskrift sem unnið er eftir við t.d. eyðingu gagna og að þriðji aðili fylgist með að unnið sé eftir henni.
Gagnaeyðing eyðir gögnum og skilgreinir sig sem öryggisfyrirtæki, eins og aðrir aðilar að NAID, National Association for Information Destruction, dóttursamtökum i-Sigma. NAID býr að mikilli þekkingu og reynslu meðlima sinna sem sameiginlega hafa unnið greinagóða lýsingu á bestu aðferðum til eyðingar gagna og sett fram í kröfuskjali sem hægt er að votta eftir. Sérstök nefnd innan NAID fer reglulega yfir skjalið og þróar að kröfum samfélagsins á hverjum tíma.
Árið 2008 fékk Gagnaeyðing sína fyrstu vottun, þá nýlega flutt á Bæjarflötina. Fulltrúi NAID kom þá og skoðaði aðstæður, verklag og skjölun Gagnaeyðingar og staðfesti að fyrirtækið væri að vinna í samræmi við þessar kröfur NAID. Á tveggja ára fresti er úttektin endurtekin, en einning má eiga von á heimsókn fulltrúans fyrirvaralaust.