
Þegar trúnaðargögn eru sett í geymslu eða flutt á milli staða getur verið nauðsynlegt að tryggja öryggi þeirra með öllum ráðum. Gagnaeyðing býður nú örugg innsigli fyrir þessar aðstæður. Innsiglin eru úr málmi og með einkvæmum númerum. Þegar gengið er frá gögnum í ílát eða ker er auðvelt að bregða innsiglinu í t.d. göt sem boruð eru á ílátið, innsigla það og skrá númer innsiglisins. Órofið ílát með slíku innsigli er örugg geymsla.

Endurvinnsla á 1 tonni af pappír sparar um 18 tonn af trjáviði, 26 tonn af vatni, 2,3 rúmmetra af landfyllingu, 320 lítra af olíu og 4.100 kWh af rafmagni. Um 97% af því sem berst Gagnaeyðingu til eyðingar er endurunnið, pappír, málmar og plast.

Gagnaílát henta vel á skrifstofna fyrir söfnun trúnaðarskjala sem skal eytt. Ílátin eru ljósgrá og má t.d. koma fyrir undir skrifborð og við ljósritunarvélar og prentara. Gagnaeyðing býður fjórar tegundir af þessum ílátum, PDC (34 lítra), S-76 (76 lítra), E-120 (120 lítra) og E-240 (240 lítra). Ílátin eru öll með innbyggðum lás og uppfylla kröfur NAID um örugga meðhöndlun trúnaðarskjala.
Þegar ílátið er orðið fullt þá hringir þú og við komum og skiptum um ílát. Við getum við líka komið reglulega til að tæma, allt eftir því sem hentar þér best.
» Meira..